Hér eru nokkur dæmi um ferðir sem gætu hentað hópum. Listinn er að sjálfsögðu engan veginn tæmandi og hafið þið einhverja sérstaka áfangastaði í huga munum við gera ykkur tilboð. Að sjálfsögðu eru ferðaáætlanir háðar færð, framboði á gistingu o.þ.h.
Reykjavík
09:00
Flogið til til Kaupmannahafnar. Farið í stutta skoðunarferð um borgina og gist þar eina nótt.
Haldið af stað snemma morguns og ekið norður eftir Strandveginum til Helsingjaeyrar. Siglt yfir til Hälsingborgar og ekið um Gautaborg til Oslóar þar sem gist er eina nótt.
Skoðunarferð um Osló fyrri hluta dags þar sem meðal annars verður farið í Vigeland-garðinn, að víkingasafninu á Bygdö og Holmenkollen. Um eftirmiðdaginn er svo ekið um Hamar til Lillehammer og gist þar.
Ekið norður um Dombås til Åndalsness og um Tröllstíginn til Geirangursfjarðar þar sem gist verður.
Ekið suður frá Geiranger um Stryn og Förde til Sognfjarðar. Siglt yfir Sognfjörðinn og ekið til Bergen. Gist í Bergen.
Litast um í Bergen fyrir hádegi. Frjáls dagur.
Heimferð.
ATHUGIÐ: Ferðaáætlanir eru háðar færð, framboði á gistingu o.þ.h.
Sími ferðaskrifstofu +354-520 5200
Sími flotastýringar: +354-520 5240
Opnunartími skrifstofu 8:30 – 16:30 GMT