Uppbyggjandi kolefniseiningar

GJ Travel er hluti af brautriðjendahópi SoGreen verkefnisins. Markmið verkefisins er að tryggja stúlkum í lágtekjuríkjum menntun og loftslagsréttlæti lagt til grundvallar. Rannsóknir hafa sýnt að menntun ungra stúlkna í lágtekjulöndum er mikilvæg lausn gegn loftslagsvandanum. Hún eykur ekki aðeins viðnámsþrótt samfélaga sem verða fyrir sterkustu áhrifum loftslagsbreytinga, heldur stuðlar hún einnig að minni losun og bætir aðlögunarhæfni þeirra sem standa höllum fæti gagnvart áskorunum framtíðarinnar.
Skuldbinding okkar í þessu verkefni og til ábyrgrar ferðaþjónustu setur fordæmi að jákvæðum breytingum. Við sem störfum í ferðaþjónustu getum haft ákvæð áhrif í hinu stóra samhengi. Með þessu sameiginlega átaki náum við fram raunverulegum árangri í mikilvægu baráttunni gegn loftslagsbreytingum og leggjum grunninn að bjartari og sjálfbærari framtíð fyrir komandi kynslóðir.
Kynntu þér meira um SoGreen verkefnið hér.