Sjálfbærnistefna okkar er mikilvæg fyrir fyrirtækið, þar sem hún tryggir að vöxtur okkar sé í takt við okkar gildi um samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni. Við setjum okkur skýr markmið og skilgreinum aðgerðir til næstu þriggja ára, með það að markmiði að GJ Travel haldi áfram að vera leiðandi í sjálfbærri ferðaþjónustu.
Við höfum unnið stefnuna í samvinnu við starfsfólkið okkar og byggjum á þeim skoðunum og áherslum sem þau settu fram í þeirri vinnu. Starfsemi fyrirtækisins er á breiðum grunni og við leitumst við að innleiða starfshætti sem tryggja umhverfis- og samfélagsvitund í allri starfsemi; þannig höfum við skapað sérstaka verkferla í þeim hluta fyrirtækisins sem snýr að rekstri bílaflotans, en jafnframt skilgreint starfsemina okkar út frá ferðaupplifun viðskiptavina okkar í heild sinni.
Við erum fyrirtæki sem býður gesti hvaðanæva úr heiminum velkomna. Þess vegna er viðeigandi að setja sjálfbærnistefnuna okkar í samhengi við sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna, enda er ferðaþjónustan atvinnugrein sem leiðir fólk saman og getur, með því að auka þekkingu og skilning, byggt brýr milli menningarheima.
Hér á eftir eru megináherslurnar í starfseminni okkar settar í samhengi við sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna, ásamt því að við setjum okkar eigin markmið og skilgreinum aðgerðir til næstu þriggja ára.
Við skipum áherslum okkar í þrjá flokka:
GJ Travel er umhugað um nærsamfélagið og vill stuðla að bættu heilsufari, vellíðan og hvers kyns jafnræði, heima og að heiman. Við höfum frá upphafi lagt áherslu á að hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið og styðja við verkefni sem stuðla að velferð íbúa.
Heilsa og velferð
Við trúum því að heilsa og vellíðan séu grundvöllur fyrir hamingjuríku lífi og samfélagi. GJ Travel styður ýmis samfélagsverkefni sem stuðla að betri heilsu og velferð, bæði með því að styðja við björgunarsveitir og með því að tryggja öryggi og vellíðan farþega okkar og starfsfólks á ferðalögum og á vinnustað.
Gæðamenntun
Við leggjum mikla áherslu á menntun og þjálfun, bæði innan fyrirtækisins og í samfélaginu í heild. Með þátttöku í uppbyggjandi samstarfsverkefnum, innanlands sem og erlendis, stuðlum við að aukinni þekkingu og meðvitund um sjálfbærni. Regluleg þjálfun starfsfólks í sjálfbærum starfsháttum, ásamt þátttöku í fræðsluferðum, stuðlar að aukinni þekkingu og meðvitund um sjálfbærni. Við teljum að menntun sé lykillinn að því að skapa sjálfbært og réttlátt samfélag.
Auk þess erum við stofnaðilar að Katla Carbon verkefninu, sem hefur það að markmiði að mennta og styðja stúlkur á þeim svæðum í heiminum sem verða verst úti vegna loftlagsáhrifa. Menntun stúlkna í lágtekjulöndum hefur lengi verið viðurkennd sem áhrifarík loftslagslausn sem stuðlar ekki aðeins að minnkun losunar, heldur styrkir einnig aðlögunarhæfni og viðnámsþrótt þeirra samfélaga sem eru hvað viðkvæmust fyrir áhrifum loftslagsbreytinga.
Jafnrétti kynja
Við erum staðráðin í að tryggja jafnrétti kynja innan fyrirtækisins og í samfélaginu. GJ Travel stuðlar að jöfnum tækifærum fyrir alla, óháð kyni, kynþætti eða kynhneigð, og vinnur að því að eyða kynjabili í atvinnulífinu. Hjá GJ Travel er jafnrétti í hávegum haft og sömu laun eru greidd fyrir sömu störf, óháð kyni, kynþætti eða kynhneigð.

Jafnræði allra
Jafnræði allra er hornsteinn í starfsemi okkar. Við trúum á réttlæti og sanngirni og viljum leggja okkar af mörkum til þess að skapa umhverfi þar sem allir fá jöfn tækifæri, hvort sem er á vinnustaðnum okkar, í nærsamfélaginu eða víða um heim, þar sem fólk á undir högg að sækja, t.d. vegna loftslagsbreytinga. Við styðjum fjölbreytt samfélagsverkefni sem stuðla að jafnræði og bættri velferð fyrir alla.
Fyrirtækið á djúpar rætur í íslenskri ferðaþjónustu og við höfum frá upphafi tekið virkan þátt í uppbyggingu og þróun greinarinnar. Við erum stolt af því að vera stofnmeðlimir SAF (Samtök ferðaþjónustunnar), Íslenska ferðaklasans og verkefnis hans um ábyrga ferðaþjónustu ásamt CE4RT.
Við höfum starfað náið með sjálfboðaliðasamtökum eins og Landsbjörg, Rauða krossinum, KSÍ og Jöklarannsóknafélagi Íslands. Frá upphafi lágvöruverslunar á Íslandi höfum við ekið eldri íbúum höfuðborgarsvæðisins í verslunarferðir í Bónus.
Með þessum verkefnum og mörgum fleiri erum við staðráðin í að leggja okkar af mörkum til sjálfbærrar þróunar og að stuðla að velferð og réttlæti í samfélaginu.
Þessi nálgun okkar er ekki aðeins í takti við okkar eigin gildi, heldur sýnir einnig hvernig við vinnum markvisst að því að gera ferðaþjónustu í heild meira sjálfbæra og ábyrgari.
Náttúra Íslands er ein af okkar dýrmætustu auðlindum, og hjá GJ Travel leggjum við mikla áherslu á að vernda hana og viðhalda náttúrugæðum. Við vinnum einnig markvisst að því að tryggja að starfsemi okkar hafi jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag. Með sjálfbærum lausnum og ábyrgum rekstrarháttum stefnum við að því að gera ferðaþjónustu okkar eins sjálfbæra og hægt er.

Sjálfbærni, sveitarfélög og samfélög
Við leggjum áherslu á að byggja upp sjálfbær samfélög með því að styðja við verkefni sem stuðla að betri innviðum og þjónustu í sveitarfélögum. Í starfsemi okkar einblínum við á samstarf við staðbundin fyrirtæki og þjónustuaðila til að tryggja að ferðaþjónustan skili ávinningi til nærsamfélagsins.
Ábyrg orkunýting
GJ Travel notar hreinustu mögulegu orkugjafa til að draga úr umhverfisáhrifum. Bílafloti okkar er uppfærður reglulega með nýjustu tækni sem stuðlar að minni losun gróðurhúsalofttegunda og nýtir nýjungar í öryggistækni. Við erum vakandi fyrir umbótum í innkaupum og orkunotkun til að tryggja að vistspor okkar sé sem allra lægst.
Loftslagsmál
Við erum meðvituð um mikilvægi þess að bregðast við loftslagsbreytingum og leggjum okkur fram við að draga úr kolefnisspori okkar. Með því að reka bílaflotann okkar í samræmi við ströngustu umhverfisstaðla, stuðlum við að því að lágmarka áhrif okkar á loftslagið. Við vinnum einnig að því að bæta upplýsingamiðlun um umhverfisáhrif okkar og setjum markmið um frekari umbætur í þessum málaflokki.
Vistkerfið
GJ Travel vinnur að því að vernda vistkerfi Íslands með því að takmarka áhrif okkar á náttúruna. Við tökum virkan þátt í verkefnum sem miða að því að hlúa að vistkerfum og endurheimta náttúrugæði, bæði með því að stjórna úrgangi og með því að stuðla að sjálfbærum starfsháttum í okkar daglega rekstri. Áhersla er lögð á að bæta úrgangsstjórnun, endurvinnslu og að draga úr notkun óendurnýjanlegra auðlinda.
GJ Travel er fyrirtæki sem leggur kapp á að skapa góðar vinnuaðstæður og sýna ábyrgð í rekstri. Við leggjum áherslu á að vöxtur fyrirtækisins sé ekki á kostnað gæða, velferðar starfsmanna eða ábyrgra innkaupa í sátt við samfélag og umhverfi.
Sjálfbær vöxtur, sanngjörn starfsmannastefna og vinnuaðstæður
GJ Travel leggur áherslu á að vöxtur fyrirtækisins verði ekki á kostnað gæða eða velferðar starfsmanna. Við vinnum markvisst að því að skapa sanngjörn og heilbrigð vinnuskilyrði fyrir allt okkar starfsfólk.
Starfsmannastefna okkar byggir á þeim meginmarkmiðum að stuðla að jafnvægi milli vinnu og einkalífs, sanngjörnum launum og stöðugri þjálfun í sjálfbærum starfsháttum. Með því að bjóða upp á sveigjanlegan vinnutíma og möguleika á því að vinna heima einn dag í viku, stuðlum við að betri vinnuaðstöðu og aukum ánægju og hollustu starfsfólks.
Við hlúum að þekkingu starfsmanna okkar og bjóðum upp á fræðslu um sjálfbæra starfshætti og verkferla.
Sjálfbærni í innkaupum og vöruþróun
Við fylgjum eftir ábyrgri innkaupastefnu sem stuðlar að sjálfbærri vöruþróun, minni sóun og hagkvæmni í rekstri. Þannig leitum við t.d. til innlendra framleiðsluaðila til að styðja nærsamfélagið og lágmarka kolefnisspor.
Notkun staðbundinnar þjónustu í ferðum okkar er einnig mikilvægur þáttur í okkar stefnu til að styðja við samfélagið og lágmarka umhverfisáhrif.
Við stefnum að því að þróa vörur sem gefa viðskiptavinum okkar kost á að tengjast landinu sterkari böndum með því að leggja sitt af mörkum og taka þátt í að vernda, viðhalda og næra áfangastaði gegnum þátttöku í lýðvísindum og sjálfboðaverkefnum. Þannig viljum við t.d. taka þátt í hreinsunarverkefnum af ýmsu tagi, en einnig gefa gestum kost á að auka þekkingu sína og skilning á náttúru og umhverfi með samstarfsverkefnum við háskóla og rannsóknarhópa.
Sjálfbærnistefna GJ Travel er samþætt í öllum þáttum starfseminnar, frá umhverfismálum og samfélagsstuðningi til viðskiptaferla og starfsmannastefnu. Með þessu tryggjum við að GJ Travel sé áfram fyrirtæki sem standi fyrir sjálfbærum vexti og ábyrgri ferðaþjónustu, þar sem gæði og velferð starfsmanna eru alltaf í fyrirrúmi.
Við erum staðráðin í að vera fyrirmynd í ferðaþjónustunni, bæði á Íslandi og víðar. Við munum halda áfram að þróa og bæta sjálfbærnistefnu okkar til að mæta framtíðarskilyrðum og stuðla að jákvæðri breytingu í samfélaginu og umhverfinu.
Starfsfólkið okkar er metnaðarfullt fyrir okkar hönd og hefur tekið virkan þátt í mótun þessarar stefnu. Lykilhugtök þeirra endurspegla viðhorf þeirra til fyrirtækisins og þeirri upplifun sem þau taka þátt í að skapa.









