Hugmynd að sjö daga ferð um Suður Frakkland. Ævintýralegir turnar Carcassanne heimsóttir, rómantísk sigling um Canal du Midi sem tengir Miðjarahaf og Atlantshaf, borgir heimsóttar á borð við Béziers og Collioure Perpignian, gerum stans í spönsku borgunum Girona og Barcelona. Skoðunarferðir með íslenskri farastjórn. Kynnist sögu og samtíð þessa litríka og fallega svæðis.
Keflavík
16:40
Flogið frá Keflavík klukkan 16:40 og lent í Barcelona klukkan 22:40. Þaðan er ekið til náttstaðar í Girona
Eftir morgunmat förum við í stutta skoðunarferð um Girona, sem er fögur og forn borg og er ein af helstu borgum Katalóníu. Eftir hádegi er svo haldið áfram til Frakklands og stansað í strandbænum fagra Collioure. Þar röltum um göngugötuna við ströndina og litumst um í bænum þar sem ýmsir listamenn hafa fundið sér innblástur. Höldum síðan til Carcassonne og gistum þar næstu 5 nætur.
Árdegis er farið í skoðanaferð um Carcassonne, sem skartar fallegum miðaldabæ, sem er á heimsmynjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Síðdegið er frjálst til að skoða sig frekar um, líta í verslanir, setjast á kaffihús og drekka í sig sögu staðarins.
Við leggjum leið okkar til fjallaþorpsins St.Guilhem le Désert, miðaldaþorps sem er á heimsminnjaskrá UNESCO og var einn af áfangastöðum pílagríma á leið til Santiago de Compostela. St.Guilhem le Désert er sagt eitt af fegurstu þorpum Frakklands þar sem rauð þök húsanna líkjast eðalsteinum sem umvafnir eru grænu flaueli. Við skoðum einnig hinn einstaka dropasteinshelli Grotte de Clamouse.
Frjáls dagur i Carcassonne. M.a. er hægt að fara í siglingu á Canal du Midi, sem er hluti af 240 kílómetra langri vatnaleið sem tengir Atlantshafið við Miðjarðarhafið.
Dagsferð til Aigues Mortes og Béziers. Aigues Mortes (Dauðavatn) er forn borg, sem stendur við Miðjaðarhafið og er enn umgirt miðaldaborgarmúr, sem setur mikinn svip sinn á bæinn, enda eins og að ferðast til fortíðar að koma þangað. Á heimleið komum við svo við í Béziers, sem er ein elsta borg Frakklands.
Brottför frá Carcassonne eftir morgunmat og haldið til borgarinnar Perpignian, þar sem við gistum síðustu nóttina. Þar innritum við okkur á hótel og eigum síðan frjálsan dag í þessari borg, sem á sér litríka sögu. Hún hefur oft skipt höndum milli Frakklands og Spánar og áður konugsríkisins Aragon. Enda mætast hér katalónsk og frönsk menning.
Brottför af hótelinu eftir morgunmat til Barcelona, þar sem verður farið í stutta skoðunarferð og síðan gefin frjáls tími til 20:30 þá höldum við af stað út á flugvöll s þaðan sem flogið er heim klukkan 23:45 og lent í Keflavík klukkan 02:00.
ATHUGIÐ: Ferðaáætlanir eru háðar færð, framboði á gistingu o.þ.h.
Sími ferðaskrifstofu +354-520 5200
Sími flotastýringar: +354-520 5240
Opnunartími skrifstofu 8:30 – 16:30 GMT