Kvennaferðin „Sigling & sjálfsrækt“ frá Dubrovnik til Trogir“ um suður Dalmatíu verður farin á hinu glæsilega fleyi
MS Melody. Farið er frá Dubrovnik og siglt um Adríahafið til Trogir. Komið er á nýja eyju á hverjum degi þar sem
við kynnumst náttúru og menningu heimamanna í hjólaferð dagsins og röltum um fallega bæi. Hver dagur byrjar
með morgunteygjum og sólarhyllingu uppi á dekki fyrir morgunmat. Eftir glæsilegan morgunverð um borð í
bátnum hjólum við af stað um fallega náttúru eyjanna. Þessi ferð er á rafhjólum (götuhjól eða MTB hjól) og
fókusinn er meira á að njóta en að þjóta. Þetta glæsifley býður upp á 16 notalegar káetur með baðherbergi.
Fararstjóri ferðarinnar er Eyrún Björnsdóttir, leiðsögumaður, markþjálfi og meistari í útivist og lýðheilsu (M.S
Outdoor sciences frá USN í Noregi). Eyrún fór í sína fyrstu hjólaferð til Króatíu árið 2008 og kolféll fyrir landinu,
menningunni og þessari skemmtilegu blöndu af siglingu og hjólaferðum um eyjarnar í Dalmatíu. Síðan þá hefur
hún farið með marga hópa af Íslendingum í „Bike & Boat“ ferðir til Króatíu, fyrst á gömlum eikarbátum en nú
síðustu árin á fallega fleyinu Melody.
*Ath skipstjórn/leiðsögumenn áskilja sér rétt til að breyta leiðum ef þörf er á vegna utanaðkomandi aðstæðna.
Samtals eru 16 káetur í boði (32 skvísur). Miðað er við að tvær deili káetu.
Staðfestingargjald er kr. 100.750,- á skvísu.
Staðfestingargjaldið kemur fram í loka ferli greiðslunnar (greiðslugátt fyrir kreditkort).
Lokagreiðsla kr. 220.250,- (á skvísu) greiðist 15. apríl 2026.