Login

Sign Up

After creating an account, you'll be able to track your payment status, track the confirmation and you can also rate the tour after you finished the tour.
Username*
Password*
Confirm Password*
First Name*
Last Name*
Email*
Phone*
Country*
* Creating an account means you're okay with our Terms of Service and Privacy Statement.

Already a member?

Login

Login

Sign Up

After creating an account, you'll be able to track your payment status, track the confirmation and you can also rate the tour after you finished the tour.
Username*
Password*
Confirm Password*
First Name*
Last Name*
Email*
Phone*
Country*
* Creating an account means you're okay with our Terms of Service and Privacy Statement.

Already a member?

Login

Rínar & Mósel Sigling

Rínar- og Mósel sigling
14. - 18. ágúst 2026

Notaleg sigling um eitt fegursta fljótakerfi Evrópu þar sem farið er niður Rín og upp Mósel. Dvalið er um borð í farþegaskipinu Monet og siglt milli sögufrægra borga og vínbæja á borð við Mainz, Rüdesheim, Boppard, Koblenz og Cochem. Á leiðinni er siglt um hinn þekkta Rínardal með vínekrum, kastölum og Lorelei-kletti. Allt er innifalið um borð, þar á meðal fullt fæði og drykkir, og íslensk fararstjórn er með í för. Þægileg og vel skipulögð ferð þar sem áhersla er lögð á upplifun, útsýni og rólega ferðahraða.

Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson.

Dagur 1:Föstudagur 14. ágúst – Til Þýskalands og um borð

Flogið með Flugi FI-520 til Frankfurt kl. 07:20 og lent þar klukkan13:00. Ekið þaðan til Cochem. Þar innritum við okkur í farþegaskipið Monet þar sem við gistum næstu 4 nætur. Kvöldverður um borð og að honum loknum kynnir áhöfnin sig og skemmtun og tónlist verður í aðalsalnum, eins og reyndar á hverju kvöldi.

Dagur 2:Laugardagur 15. ágúst – Cochem og Móseldalurinn

Um morguninn er siglt af stað niður eftir Mósel, þar sem hún liðast eftir Mósel-dalnum með vínekrur upp eftir öllum hlíðum. Komið til smábæjarins Alken eftir hádegið og stanzað þar. Um kvöldið er svo aftur siglt af stað til Koblenz og áætlað að koma þangað klukkan níu um kvöldið. Þar verður boðið upp á stutta gönguferð um miðbæinn, fyrir þá sem vilja og nenna.

Dagur 3:Sunnudagur 16. ágúst – Sigling upp Móseldalinn og ármótin

Þegar við vöknum erum við komin á siglingu upp eftir Rínarfljóti. Eftir morgunverð er komið við í bænum Boppard og gerum þar stuttan stanz. Við siglum svo um fegursta hluta Rínardalsins þar sem vínekrur liggja upp eftir hlíðunum og fornir kastalar standa uppi á hverri hæð. Við siglum fram hjá Lorelei-kletti þar sem vatnadísin Lorelei heillar til sín þá sem framhjá sigla með söng sínum. Síðdegis tökum tökum við svo land í vínræktarbænum Rüdesheim þar sem við förum í land og skoðum okkur um. Siglt aftur af stað um nóttina og tilvalið að líta í bæinn um kvöldið.

Dagur 4: Mánudagur 17. ágúst – Rínardalur og vínbæir

Um morguninn er komið Mainz og þar gefst okkur tími til að skoða okkur aðeins um í þessari 2000 ára gömlu borg áður en haldið er áfram. Um kvöldið er svo “gala”-kvöld um borð þar sem boðið er til hátíðarkvöldverðar og hressilegrar kvöldskemmtunar.

Dagur 5:Þriðjudagur 18. ágúst – Heimferð

Komið í land í Strasbourg og ekið um klukkan 08:00 til Frankfurt þaðan sem flogið verður til Keflavíkur klukkan 14:00. Lent í Keflavík klukkan 15:45.

*Ath skipstjórn/leiðsögumenn áskilja sér rétt til að breyta leiðum ef þörf er á vegna utanaðkomandi aðstæðna.

Í öllum ferðum má gera ráð fyrir einhverjum göngum. Farþegar þurfa því að geta komizt leiðar sinnar hjálparlaust, eða útvega sjálfir þá aðstoð, sem þeir kunna að þurfa. Almennt eru gönguleiðir ekki langar, nema þær séu valkvæðar.

Verð ferðar er kr. 269.500 pr. mann í káetu
Miðað við gistingu í tvíbýli.. Aukagjald fyrir einbýli kr. 53.400

Staðfestingargjald er kr. 70.000.-

 

Innifalið
  • 5 daga ferð samkvæmt leiðarlýsingu.
  • Flug og flugvallarskattar til og frá Íslandi
  • Sigling um Rín og Mósel, hafnargjöld, gisting um borð í MS Monet í tveggja manna káetum með baði, sængurföt/handklæði eru í káetum. Skipti um á rúmum um miðja ferð.
  • Fullt fæði (morgun-, hádegis- og kvöldmatur) og allir drykkir um borð
  • Allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu og íslensk fararstjórn
  • Frítt internet
Ekki Innifalið
  • Gisting fyrir/eftir ferð í Frankfurt ef einhverjir vilja skoða/dvelja lengur.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar: outgoing@gjtravel.is