Þegar NASA kom til Íslands með Neil Armstrong og félaga árið 1965 og 1967 til að undirbúa tunglferðina þá var keyrt um hálendið á þessari sömu rútu af Guðmundi Jónassyni sjálfum.
Ferðalag í þessari rútu er einstök upplifun og hefur hún verið mjög vinsæl í brúðkaupum og kvikmyndaverkefnum.
Fyrsta Mercedes Benz hópferðabifreið Guðmundar Jónassonar, með íslenskri yfirbyggingu frá Bílasmiðjunni hf. og tekin í notkun árið 1960.