Login

Sign Up

After creating an account, you'll be able to track your payment status, track the confirmation and you can also rate the tour after you finished the tour.
Username*
Password*
Confirm Password*
First Name*
Last Name*
Email*
Phone*
Country*
* Creating an account means you're okay with our Terms of Service and Privacy Statement.

Already a member?

Login

Login

Sign Up

After creating an account, you'll be able to track your payment status, track the confirmation and you can also rate the tour after you finished the tour.
Username*
Password*
Confirm Password*
First Name*
Last Name*
Email*
Phone*
Country*
* Creating an account means you're okay with our Terms of Service and Privacy Statement.

Already a member?

Login

Þar sem leiðin til tunglsins liggur um Ísland

NASA þjálfun á Íslandi
Frá Apollo til Artemis hefur Ísland gegnt mikilvægu hlutverki í þjálfun geimfara NASA. GJ Travel hefur verið hluti af þeirri sögu í meira en 60 ár.

Þegar geimfarar NASA stigu upp í R373 hópferðabíl GJ Travel sumarið 2026 var það ekki í fyrsta sinn.
Fyrir okkur var þetta miklu meira en venjulegt verkefni.
Það var augnablik sem rifjaði upp sögu sem hefur fylgt fyrirtækinu í áratugi. Sögu sem hófst á íslensku hálendi á sjöunda áratugnum og heldur áfram enn í dag.
Í 95 ár hefur GJ Travel ferðast um Ísland með gesti alls staðar að úr heiminum. Á hverju ári verða til nýjar minningar og nýjar sögur. Flestar þeirra eru persónulegar. Sumar verða hluti af sögu Íslands.
Örfáar verða hluti af sögu geimkönnunar.
Saga okkar með NASA er ein þeirra.
Það er okkur mikill heiður að hafa fengið að vera hluti af þessari sögu í meira en sex áratugi. Frá fyrstu heimsóknum Apollo-geimfaranna til endurheimsókna þeirra áratugum síðar og heimsókna Artemis-geimfara árin 2024 og 2026.

Þetta eru augnablik sem minna okkur á að stundum verða dagleg verkefni hluti af stærri sögu. Ekki vegna þess að við vissum hvert hún myndi leiða, heldur vegna þess að við höfum ávallt lagt metnað í að sýna gestum okkar Ísland af öryggi, þekkingu og virðingu.

 

Jarðfræði sem undirbýr geimferðir

Sumarið 2026 kom nýr hópur Artemis geimfara frá NASA til Íslands í jarðfræðiþjálfun. Í heimsókninni fékk R373 enn á ný sitt hlutverk þegar GJ Travel ók geimförunum í sömu sögulegu rútu og tengist Apollo-sögunni.
Þótt flestir tengi Ísland við fossa, jökla og norðurljós hefur landið lengi verið mikilvægt rannsóknarsvæði fyrir jarðfræðinga víða að úr heiminum. Hraunbreiður, eldfjöll, gígar og fjölbreytt bergmyndanir gera Ísland að einstökum vettvangi til að rannsaka hvernig plánetur mótast og þróast.
Þess vegna hefur NASA í áratugi valið Ísland sem hluta af undirbúningi geimfara.
Hér læra þeir að lesa landslag, greina bergmyndanir og safna sýnum með markvissum hætti. Þekkingu sem nýtist síðar við rannsóknir á tunglinu og í framtíðinni við leiðangra lengra út í geim.

Artemis hópurinn ásamt bílstjóra R373, Guttormi Birni Þórarnissyni skömmu fyrir brottför út á flugvöll (2026).

Það er okkur heiður að hafa enn á ný fengið að taka þátt í þessari sögu og sjá R373 tengja saman kynslóðir geimfara.

 

Þegar sagan endurtók sig árið 2024

Árið 2024 komu geimfarar Artemis II til Íslands í jarðfræðiþjálfun.
Við það tilefni fékk R373 aftur sérstakt hlutverk.
Rútan sem hafði flutt Apollo-geimfara á sjöunda áratugnum varð enn á ný hluti af sögunni þegar hún tók á móti nýrri kynslóð geimfara NASA. Að lokinni vel heppnaðri æfingaferð var R373 ekið með hópinn síðasta spölinn á Keflavíkurflugvöll.

NASA Artemis II geimfarar og sögufræg rúta
NASA Artemis II hópurinn á leiðinni heim ásamt Siguðri Erni Arngrímssyni bílstjóra R373 (2024).

Það var einstök stund að sjá sömu rútuna tengja saman tvær kynslóðir geimfara með tæplega sextíu ára millibili.

 

Gömul kynni endurnýjuð

Árið 2015 sneru eftirlifandi Apollo-geimfarar aftur til Íslands, fimmtíu árum eftir fyrstu jarðfræðiþjálfun sína.

Þeir heimsóttu á ný staðina sem höfðu gegnt mikilvægu hlutverki í undirbúningi þeirra fyrir Apollo-áætlunina.
Fyrir okkur hjá GJ Travel var heimsóknin áminning um að góðar sögur lifa áfram.
Sama landið.
Sama fyrirtækið.

Og enn sama tengingin.

Neil Armstrong og eftirlifandi geimfarar úr Apollo leiðangrinum ásamt fjölskyldum þeirra heimsækja Ísland aftur eftir 50 ár. Bílstjóri R373 var Stefan Gunnarsson, forstjóri GJ Travel (2015).

 

Þegar litið er lengra aftur í tímann stendur ein rúta upp úr.

Geimfarar og rúta
Geimfararnir voru  spenntir að fá að ferðast í R373. Bifreið sem tengir saman kynslóðir NASA geimfara á Íslandi.

R373 var fyrsta Mercedes-Benz hópferðabifreið GJ Travel. Hún var tekin í notkun árið 1960 og yfirbyggð hér á landi af Bílasmiðjunni hf.

Í meira en sex áratugi hefur hún fylgt sögu fyrirtækisins. Fyrir fjölskylduna sem hefur rekið GJ Travel í þrjár kynslóðir er hún miklu meira en gömul rúta. Hún er áþreifanleg tenging við Guðmund Jónasson, upphaf fyrirtækisins og þær óteljandi ferðir og sögur sem hafa mótað GJ Travel í nær heila öld. Þess vegna hefur hún verið varðveitt af alúð og er í dag einn dýrmætasti sögugripur fyrirtækisins.

Hún var byggð til að flytja ferðamenn um Ísland. Enginn gat vitað að aðeins nokkrum árum síðar ætti hún eftir að flytja geimfara NASA um íslenskt hálendi.

Í dag er R373 ekki aðeins einn merkasti sögugripur GJ Travel heldur einnig einstök tenging við einn merkilegasta kafla í sögu geimkönnunar.

 

Þar sem leiðin til tunglsins hófst
Árin 1965 og 1967 komu geimfarar NASA til Íslands til að undirbúa Apollo-geimferðirnar.
Markmiðið var að vinna í landslagi sem líktist að mörgu leyti yfirborði tunglsins. Íslensk hraun, gígar og eldfjallasvæði reyndust tilvalin til þess.
Til að komast um hálendið þurfti traust farartæki og ökumann sem þekkti landið eins og lófann á sér.
Þar kom Guðmundur Jónasson til sögunnar.

Guðmundur Jónasson og Neil Armstrong (1967).

Á þeim tíma ók Guðmundur Jónasson sjálfur mörgum af mikilvægustu ferðum fyrirtækisins. Þegar NASA-geimfararnir komu til Íslands var það stofnandinn sjálfur sem sat undir stýri á R373 og fylgdi þeim um íslenskt hálendi. Meðal farþeganna var ungur geimfari að nafni Neil Armstrong.
Fjórum árum síðar, árið 1969, varð hann fyrstur manna til að stíga fæti á tunglið.
Þegar R373 ók um íslensku hraunin gat enginn vitað að einn farþeganna ætti eftir að skrifa einn merkilegasta kafla í sögu geimkönnunar.
Við vissum ekki að við værum að flytja geimfara sem áttu eftir að verða hluti af þeirri sögu.
Við vissum aðeins að við ætluðum að sýna gestum okkar Ísland eins vel og við gætum. Það er enn okkar hlutverk.

Saga sem heldur áfram
Saga GJ Travel og NASA er ekki aðeins saga um rútu eða nokkrar heimsóknir.
Hún er saga um Ísland.
Um land sem í meira en sex áratugi hefur gegnt mikilvægu hlutverki í undirbúningi geimfara og vísindarannsókna.
Við vitum ekki hvaða nýju kaflar eiga eftir að bætast við sögu geimkönnunar með þeim geimförum sem hafa ferðast um landið okkar.

En það er okkur mikill heiður að hafa fengið að vera lítill hluti af þeirri sögu og við erum stolt af henni.
En umfram allt er það okkur mikill heiður að vera enn hluti af henni.

Við sýnum ykkur Ísland.

 

NASA Artemis geimfarar
Hver vegur að heiman er vegurinn heim. NASA Artemis hópurinn á góðri stund (2026).

Fleiri myndir

Myndir úr einkaeigu Guðmundar Jónassonar ehf. og Könnunarsögusafnsins.

 

 

Leave a Reply

Newsletter

Need more information?

Simply give us a call. We have a team of travel specialists that are here to help you.

+354 520 5200

gjtravel@gjtravel.is