Notaleg sigling um eitt fegursta fljótakerfi Evrópu þar sem farið er niður Rín og upp Mósel. Dvalið er um borð í farþegaskipinu Monet og siglt milli sögufrægra borga og vínbæja á borð við Mainz, Rüdesheim, Boppard, Koblenz og Cochem. Á leiðinni er siglt um hinn þekkta Rínardal með vínekrum, kastölum og Lorelei-kletti. Allt er innifalið um borð, þar á meðal fullt fæði og drykkir, og íslensk fararstjórn er með í för. Þægileg og vel skipulögð ferð þar sem áhersla er lögð á upplifun, útsýni og rólega ferðahraða.
Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson.
*Ath skipstjórn/leiðsögumenn áskilja sér rétt til að breyta leiðum ef þörf er á vegna utanaðkomandi aðstæðna.
Í öllum ferðum má gera ráð fyrir einhverjum göngum. Farþegar þurfa því að geta komizt leiðar sinnar hjálparlaust, eða útvega sjálfir þá aðstoð, sem þeir kunna að þurfa. Almennt eru gönguleiðir ekki langar, nema þær séu valkvæðar.
Staðfestingargjald er kr. 70.000.-