Login

Sign Up

After creating an account, you'll be able to track your payment status, track the confirmation and you can also rate the tour after you finished the tour.
Username*
Password*
Confirm Password*
First Name*
Last Name*
Email*
Phone*
Country*
* Creating an account means you're okay with our Terms of Service and Privacy Statement.

Already a member?

Login

Login

Sign Up

After creating an account, you'll be able to track your payment status, track the confirmation and you can also rate the tour after you finished the tour.
Username*
Password*
Confirm Password*
First Name*
Last Name*
Email*
Phone*
Country*
* Creating an account means you're okay with our Terms of Service and Privacy Statement.

Already a member?

Login

Norður Ítalía

Norður Ítalía - UPPSELD
21.-28. maí, 2026

Vikuferð til Norður Ítalíu.
Gist á 120 ára gömlu glæsihóteli í bænum Stresa við stöðuvatnið Lago Maggiore.
Heillandi umhverfi, stórbrotið landslag, glæsilegar byggingar og litrík saga.

Mikið innfalið; flug, flugvallaskattar, gisting, 1/2 fæði, akstur, fjórar dagsferðir, sigling og íslensk fararstjórn.

Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson.

Dagur 1:Fimmtudagur 21. maí –

Ekið frá Borgum til Keflavíkur klukkan 05:30 og flogið með flugi Flugleiða FI-590 klukkan 09:00 til Mílano og lent þar um klukkan 15:10. Þaðan er ekið að bænum Stresa við Maggiore vatnið, sem er næststærsta stöðuvatn Ítalíu og liggur bæði í Ítalíu og Sviss. Þar gistum við næstu sjö nætur á Hótel Regina Palace, sem er meira en 100 ára gamalt glæsihótel, sem hýst hefur kóngafólk og auðmenn og leikara og listamenn allt fram á okkar daga.
Kvöldverður á hóteli.

Dagur 2:Föstudagur 22. maí –

Dagsferð á Maggiore-vatni. Farið verður á siglingu á vatninu til Borromeo eyjanna og og tekið land á helztu eyjunum.
Kvöldverður á hóteli.

Dagur 3:Laugardagur 23. maí –

Frjáls dagur í Stresa. Tilvalinn til þess að eyða í göngu meðfram vatninu, sitja á kaffihúsi og kynnast heimamönnum. Einnig að nota aðstöðuna við hótelið okkar, en þar er bæði úti- og innisundlaug, sundlaugabar, gufuböð o.fl.
Kvöldverður á hóteli.

Dagur 4: Sunnudagur 24. maí –

Sveitaferð. Ekið upp Ossoladalinn til Domodossola og farið í vín- og matarsmökkun héraðsins.

Dagur 5:Mánudagur 25. maí –

Frjáls dagur í Stresa.
Kvöldverður á hóteli

Dagur 6:Þriðjudagur 26. maí –

Skoðunarferð til Mílanó þar sem litið verður á helztu kennileiti s.s. óperuhúsið fræga la Scala og Dómkirkjuna. Síðan verður gefinn góður frjáls tími til að skoða sig um í þessari næststærstu borg Ítalíu.
Kvöldverður á hóteli.

Dagur 7:Miðvikudagur 27. maí -

Um morguninn er farið í skoðunarferð til Taranto garðanna, sem gerðir voru af Skotanum Neil McEarcharn fyrir bráðum 80 árum síðan og þykja einstaklega fagrir. Síðdegið frjálst í Stresa.
Kvöldverður á hóteli.

Dagur 8:Fimmtudagur 28. maí -

Brottför frá hóteli um hádegi og ekið til Malpensaflugvallar. Flogið heim með FI-591 klukkan 16:20 og lent í Keflavík klukkan 18:35. Ekið heim í Borgir.

*Ath Leiðsögumenn áskilja sér rétt til að breyta leiðum ef þörf er á vegna utanaðkomandi aðstæðna.

Verð á mann 343.500,-
Aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 110.000,-
Innifalið
  • Flug og flugvallaskattar
  • Gisting í tveggja manna herbergi
  • ½ fæði (morgunverður og kvöldverðir)
  • Allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu
  • Sigling á Maggiorevatni
  • Íslensk fararstjórn

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar: outgoing@gjtravel.is