Login

Sign Up

After creating an account, you'll be able to track your payment status, track the confirmation and you can also rate the tour after you finished the tour.
Username*
Password*
Confirm Password*
First Name*
Last Name*
Email*
Phone*
Country*
* Creating an account means you're okay with our Terms of Service and Privacy Statement.

Already a member?

Login

Login

Sign Up

After creating an account, you'll be able to track your payment status, track the confirmation and you can also rate the tour after you finished the tour.
Username*
Password*
Confirm Password*
First Name*
Last Name*
Email*
Phone*
Country*
* Creating an account means you're okay with our Terms of Service and Privacy Statement.

Already a member?

Login

Skvísuhjól

Sigling & sjálfsrækt í Adríahafinu
Kvennaferð 16. - 23. maí 2026

Kvennaferðin „Sigling & sjálfsrækt“ frá Dubrovnik til Trogir“ um suður Dalmatíu verður farin á hinu glæsilega fleyi
MS Melody. Farið er frá Dubrovnik og siglt um Adríahafið til Trogir. Komið er á nýja eyju á hverjum degi þar sem
við kynnumst náttúru og menningu heimamanna í hjólaferð dagsins og röltum um fallega bæi. Hver dagur byrjar
með morgunteygjum og sólarhyllingu uppi á dekki fyrir morgunmat. Eftir glæsilegan morgunverð um borð í
bátnum hjólum við af stað um fallega náttúru eyjanna. Þessi ferð er á rafhjólum (götuhjól eða MTB hjól) og
fókusinn er meira á að njóta en að þjóta. Þetta glæsifley býður upp á 16 notalegar káetur með baðherbergi.

Fararstjóri ferðarinnar er Eyrún Björnsdóttir, leiðsögumaður, markþjálfi og meistari í útivist og lýðheilsu (M.S
Outdoor sciences frá USN í Noregi). Eyrún fór í sína fyrstu hjólaferð til Króatíu árið 2008 og kolféll fyrir landinu,
menningunni og þessari skemmtilegu blöndu af siglingu og hjólaferðum um eyjarnar í Dalmatíu. Síðan þá hefur
hún farið með marga hópa af Íslendingum í „Bike & Boat“ ferðir til Króatíu, fyrst á gömlum eikarbátum en nú
síðustu árin á fallega fleyinu Melody.

Dagur 1:Laugardagur 16. maí – Slano – Majkovi viewpoin

Konur koma sér á eigin vegum til Dubrovnik. Mælt er með að koma degi fyrr til að skoða þennan fallega bæ, en
Dubrovnik var tökustaður „Kings landing“ í Game of Thrones. Mæting er um borð í MS Melody kl.13 (nánari
staðsetning síðar). Við komum okkur fyrir í káetum og kynnum okkur hið fallega fley Melody sem verður heimili
okkar næstu vikuna.
Okkur er boðið í “welcome drink” og kynningu skipstjóra á fleyinu og áhöfninni. Siglt af stað frá Dubrovnik til
Slano (ca. 2 tímar). Þegar komið er að landi í Slano eru hjólin sett í land og tekinn tími í að prófa/stilla hjólin fyrir
okkur. Við hjólum svo léttan túr í eftirmiðdaginn um eyjuna í fylgd leiðsögumanna.

Hjólatúr: Rafhjól 20km / 440m — E-MTB 24km / 550m
Matur: Kvöldverður um borð
Bátur við festar yfir nóttina í Slano

Dagur 2:Sunnudagur 17. Maí – Pelješac skaginn – Orebic viewpoint

Þennan morgun siglum við frá Slano út á Pelješac skagann (2 tímar). Meðan á siglingunni stendur njótum við
morgunverðar og gerum okkur klárar í hjólaferð dagsins sem er frá bænum Kuciste að útsýnisstaðnum Orebic .
Hádegisverður um borð eftir hjólatúr og í eftirmiðdaginn siglum við svo yfir til eyjunnar Korčula og dveljum þar yfir
nóttina. Rölt um bæinn og kvöldverður á eigin vegum í þessum fallega bæ í lok dags.

Hjólatúr: Rafhjól 35km / 620m — E-MTB 35km / 900m
Matur: Hádegisverður um borð
Bátur við festar yfir nóttina í Korčula

Dagur 3:Mánudagur 18. Maí – Náttúruperlan Korčul

Á meðan við siglum frá bænum Korčula til Prigradica (1,5 tími) snæðum við morgunverð og njótum útsýnisins til
eyjunnar. Hjólatúr dagsins er svo frá bænum Prigradica til Vela Luka. Hádegisverður býður okkar svo þegar
komið er um borð eftir hjólatúrinn. Siglt yfir til eyjunnar Vis í eftirmiðdaginn, hvar við dveljum í falllegri vík yfir
nóttina. Kvöldverður um borð – hvítt þema.

Hjólatúr: Rafhjól 44km / 750m — E-MTB 30-35km / 800m
Matur: Hádegisverður og kvöldverður um borð
Bátur við festar yfir nóttina við eyjuna Vis

Dagur 4: Þriðjudagur 19. Maí – Eyjan Vis og vínviðurinn

Eftir morgunmat höldum við í hjólaævintýri dagsins. Leggjum af stað frá Vis yfir til Komiža. Leiðin liggur upp, upp,
upp og þegar við náum hæsta punkti, horfum við niður að ströndinni við Komiža. Við rúllum svo niður brekkurnar
og njótum hvíldar í þessum litla fallega strandbæ. Eftir góða pásu höldum við til baka meðfram ströndinni og svo
einstaklega fallega leið til baka til Vis. Hádegisverður að loknum hjólatúr um borð, meðan við siglum yfir til
eyjunnar Hvar. Komið í höfn í Hvar seinni part dags. Rölt um bæinn og kvöldverður á eigin vegum í Hvar. Bærinn
er mjög rómantískur og fjöldi veitingastaða til að njóta matar og drykkjar.

Hjólatúr: Rafhjól 28-32km / 900m — E-MTB 31km / 650m
Matur: Hádegisverður
Bátur við festar yfir nóttina í Hvar

Dagur 5:iðvikudagur 20. Maí – Eyjan Hvar, matur að hætti heimamanna.

Um morguninn siglum við frá Hvar yfir til bæjarins Stari Grad. Eftir morgunverð höldum við í hjólatúr dagsins um
eyjuna Hvar. Leiðin liggur um lavender akra og búgarða með ólífu- og appelsínu trjám. Við stoppum í
hádegispásu á leiðinni og komum svo í eftirmiðdaginn til Jelsa, hvar Melody bíður okkar. Kvöldverður um borð.

Hjólatúr: Rafhjól 35km / 550m — E-MTB 40km / 850m
Matur: Hádegisverður á eigin vegum, kvöldverður um borð
Bátur við festar yfir nóttina í Jelsa

Dagur 6: Fimmtudagur 21. maí – Gatsby gala dinner

Á meðan við njótum morgunverðar, siglum við yfir til Bol á eyjunni Brac. Frá Bol hjólum við um einstaka náttúru
eyjunnar Brač. Eyjan er þekkt fyrir hvítan kalkstein og á leið okkar sjáum við víða kalksteinsnámur en steinninn
héðan var meðal annars notaður til að byggja Hvíta húsið í Bandaríkjunum. Okkur gefst kostur á að kaupa
hádegisverð á búgarði þar sem maturinn er eldaður á kolabeði á sérstakan hátt. Leið okkar liggur svo til
heimabæjar Melody, Postira. Um kvöldið mun skipstjórinn okkar hann Pave, bjóða okkur til kvöldverðar „Captains
Dinner“ um borð. Við tökum boðinu fagnandi og klæðumst Gatsby/gala klæðnaði, njótum veislunnar og
skemmtum okkur með áhöfninni.

Hjólatúr: Rafhjól 44-56 km / 800-1000m — E-MTB 39km / 1000m
Matur: Kvöldverður „Captains Dinner“
Bátur við festar yfir nóttina í Postira

Dagur 7:Föstudagur 22. Maí – Síðasta eyja ferðarinnar

Hjólatúr dagsins hefst eftir morgunverð og liggur leiðin frá Postira til bæjarins Sutivan. Fallegar strendur og
ólífuakrar verða á leið okkar þennan daginn. Hádegisverður um borð eftir hjólatúr og mun báturinn sigla yfir til
meginlandsins á meðan við snæðum. Í eftirmiðdaginn komum við til Trogir, en gamli bærinn er einstaklega
fallegur miðaldabær sem hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá 1997. Það er virkilega gaman að rölta um
gamla bæinn, skoða markaðinn og njóta kvöldsins á þessum fallega stað. Kvöldverður á eigin vegum.

Hjólatúr: Rafhjól 17 km / 150m — E-MTB 25km / 400m
Matur: Hádegisverður
Bátur liggur við festar í Trogir – gamla bænum

Dagur 8:Laugardagur 23. Maí – Fallegi bærinn Trogir kvaddur

Eftir morgunmat kveðjum við MS Melody og áhöfnina (farið frá borði kl. 9). Heimferð á eigin vegum frá
Trogir/Split.

*Ath skipstjórn/leiðsögumenn áskilja sér rétt til að breyta leiðum ef þörf er á vegna utanaðkomandi aðstæðna.

Verð ferðar er kr. 325.000 pr. konu miðað við tvær í káetu.

Samtals eru 16 káetur í boði (32 skvísur). Miðað er við að tvær deili káetu.
Staðfestingargjald er kr. 100.750,- á skvísu.

Staðfestingargjaldið kemur fram í loka ferli greiðslunnar (greiðslugátt fyrir kreditkort).
Lokagreiðsla kr. 220.250,- (á skvísu) greiðist 15. apríl 2026.

Innifalið
  • 8 daga ferð samkvæmt leiðarlýsingu.
  • Leiðsögn reyndra hjólaleiðsögumanna frá Króatíu. Tveir mismunandi hópar í boði, venjuleg rafhjól / MTB rafhjól.
  • Sigling um Adríahafið, hafnargjöld, gisting um borð í MS Melody í tveggja manna káetum með baði, sængurföt/handklæði eru í káetum. Skipti um á rúmum um miðja ferð.
  • Hálft fæði* (ýmist hádegis- eða kvöldverður um borð, allt vatn, ávextir, hnetur o.fl. í matsal).
  • Frítt internet, afnot af SUP brettum, kayak ofl. til að nota í sjónum þegar stoppað er í fallegum víkum til að njóta
Ekki Innifalið
  • Flug Ísland-Dubrovnik, sigling byrjar í Dubrovnik.
  • Gisting fyrir/eftir ferð í Dubrovnik/Trogir (Split) ef konur vilja skoða/dvelja lengur.
  • Flug Split-Ísland (Split er 5km frá Trogir, þar sem ferðin endar).
  • Drykkir um borð.
  • Þjórfé fyrir leiðsögumenn/áhöfn.
  • Leiga á hjóli EUR 350.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar: outgoing@gjtravel.is