Hér eru nokkur dæmi um ferðir sem gætu hentað hópum. Listinn er að sjálfsögðu engan veginn tæmandi og hafið þið einhverja sérstaka áfangastaði í huga munum við gera ykkur tilboð. Að sjálfsögðu eru ferðaáætlanir háðar færð, framboði á gistingu o.þ.h.
Keflavík
09:00
Flogið frá Keflavík og lent í Frankfurt. Þar mun bíða okkar hópferðabíll sem ekur okkur til Würzburg (ca. 2 klst. ferð). Þar verður gist næstu fjórar nætu. Boðið verður upp á stutta gönguferð, sem tekur ca. 1 ½ klst, eftir að búið er að innrita okkur á hótelið. Würzburg er gömul og falleg borg með ótal skoðunarverða staði og verzlanir. Borgin, sem var á sínum tíma sjálfstætt kirkjuríki, stendur á bökkum Main fljótsins með víggirtan kastala á hæð annars vegar við ána og gamlan miðbæ (að hluta til innan borgarmúra) hins vegar. Gömul steinbrú frá 15. öld tengir svo borgarhlutana.
Frjáls dagur í Würzburg.
Dagsferð til Rothenburg ob der Tauber, sem er einstaklega vel varðveitt miðaldaborg og að hluta til laus við bílaumferð. Borgin var á sínum tíma ein af fríborgum Þýzka ríkisins sem voru óháð borgarlýðveldi og miðstöðvar verzlunar og viðskipta. Í Rothenburg er frægt “jólaland” sem er opið allan ársins hring. Á leiðinni til Rothenburg verður ekið um hluta hinnar svokölluðu ”Rómantísku leiðar”. Að lokinni heimsókninni til Rothenburg verður farið um vínræktarhéruðin í Franken og meðal annars litið við í vínsmökkun enda Franken-vínin fræg fyrir gæði.
Brottför frá hóteli eftir morgunverð, um kl. 10:00. Flogið frá Frankfurt og lent í Keflavík síðdegis.
ATHUGIÐ: Ferðaáætlanir eru háðar færð, framboði á gistingu o.þ.h.
Sími ferðaskrifstofu +354-520 5200
Sími flotastýringar: +354-520 5240
Opnunartími skrifstofu 8:30 – 16:30 GMT