Rómantík í Würzburg 06.-09. október 2011

Fimmtudagur 06.okt. Flogið frá Keflavík með Flugleiðum kl. 07:25 og lent í Frankfurt kl. 12: 50. Þar mun bíða okkar hópferðabíll sem ekur okkur til Würzburg (ca. 2 klst. ferð). Þar verður gist næstu fjórar nætur á Hótel Mercure. Hótelið er vel staðsett í miðbæ Würzburg örstutt frá markaðstorginu og helstu verzlunargötunum. Boðið verður upp á stutta gönguferð, sem tekur ca. 1 ½ klst, eftir að búið er að innrita okkur á hótelið. Würzburg er gömul og falleg borg með ótal skoðunarverða staði og verzlanir. Borgin, sem var á sínum tíma sjálfstætt kirkjuríki, stendur á bökkum Main fljótsins með víggirtan kastala á hæð annars vegar við ána og gamlan miðbæ (að hluta til innan borgarmúra) hins vegar. Gömul steinbrú frá 15. öld tengir svo borgarhlutana.

Föstudagur 07.okt. Frjáls dagur í Würzburg.

Laugardagur 08. okt. Dagsferð til Rothenburg ob der Tauber, sem er einstaklega vel varðveitt miðaldaborg og að hluta til laus við bílaumferð. Borgin var á sínum tíma ein af fríborgum Þýzka ríkisins sem voru óháð borgarlýðveldi og miðstöðvar verzlunar og viðskipta. Í Rothenburg er frægt “jólaland” sem er opið allan ársins hring. Á leiðinni til Rothenburg verður ekið um hluta hinnar svokölluðu ”Rómantísku leiðar”. Að lokinni heimsókninni til Rothenburg verður farið um vínræktarhéruðin í Franken og meðal annars litið við í vínsmökkun enda Franken-vínin fræg fyrir gæði.

Sunnudagur 09. okt. Brottför frá hóteli eftir morgunverð, um kl. 10:00. Flogið með FI521 kl. 14:00 frá Frankfurt og lent í Keflavík kl. 15:35

 

Fararstjóri: Emil Örn Kristjánsson

 

Verð á mann 97.500,-ISK

Innifalið í verðir

  •  Flug og flugvallaskattar  
  • gisting í tveggjamanna herbergi með morgunverði
  • allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu
  • vínsmökkun
  • íslenzk fararstjórn 

 

Aukagjald í einsmannsherbergi 8.500.- ISK

Verð miðast við gengi og forsendur 25.01.2011 og 25 manna hóp.
Ferðaáætlun getur tekið breytingum.







 





Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar | Utanlandsdeild | Borgartún 34, 105-Reykjavík | S: 511 1515 | Fax: 511 1511 | outgoing@gjtravel.is | Kt.: 410166-0389