7-daga ferð um Suður-England og Wales

10. – 16. ágúst 2012

Sjö daga ferð um Suður- og Mið-England og Wales. Komið m.a. við í Oxford, Stratford up-on-Avon, Bristol, Bath og Brecon þjóðgarðinum. Skoðunarferðir alla daga, allur aðgangseyrir og hálft fæði innifalið. Íslenzk fararstjórn. 

 

10.08. Flogið til London klukkan 07:40 og lent þar klukkan 11:45. Ekið til háskólaborgarinnar frægu, Oxford þar sem meðal annars verður heimsóttur einn af frægu stúdentagörðunum (college) þeirra, gengið um miðbæinn og einnig verður frjáls tími þar. Þaðan er síðan ekið til Birmingham þar sem gist verður næstu 2 nætur á Jurys Inn Hotel, sem er vel staðsett 3ja störnu hótel. Kvöldverður á hóteli.

11.08. Dagurinn hefst með heimsókn í Warwick-kastala, sem einstaklega vel varðveittur miðaldakastali. Síðan er farið í skoðunarferð um Stratford upon Avon, sem er fæðingarstaður leikritaskáldsins fræga William Shakespeare. Þar getur að líta æskuheimili hans, sem nú er safn og einnig skólann sem hann sótti menntun sína í og fleira sem tengist minningu hans. Síðdegis verður svo frjáls tími til að skoða sig um í þessum fallega bæ. Ekið aftur til Birmingham í lok dags. kvöldverður á hóteli.

12.08. Ekið um litrík þorp og bæi í Cotswolds, sveitina sem oft er kölluð “hjarta Englands. Þar gefum okkur tíma til að stanza á nokkrum stöðum til að litast um og fáum okkur síðdegiste á sveitakrá. Í lok dags er komið til Bristol þar sem við gistum á The Grand Hotel, sem er 4ra stjörnu hótel í miðborginni, næstu 4 nætur. Kvöldverður á hóteli.

13.08 Farið í stutta skoðunarferð um Bristol. Borgin er forn og mikilvæg hafnarborg. Héðan sigldu enskir kaupmenn á sínum tíma til að verzla við Íslendinga í trássi við bann konungs, hér var ein helzta miðstöð þrælaverzlunar Englendinga á 18. öld og hér er einnig að funna gufuskipið Great Britain, sem var fyrsta haffæra skrúfudrifna skip veraldar og stærta skip í heimi þegar það var smíðað 1843. Við lítum við í hafnarhverfinu en einnig verður litið á Clifton-hengibrúna, sem er ein frægasta brú Englands. Síðdegið er svo frjálst til að skoða Bristol frekar á eigin vegum, líta í verzlanir o.þ.h. Sameiginlegur kvöldverður.

14.08 Heilsdagsferð til Bath, Wells og Cheddar Gorge..Farið verður í skoðunarferð um Bath, borg sem er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna Þar förum við í skoðunarferð og heimsækjum rómversku böðin og safnið sem þeim tengist. Þaðan er haldið til Wells, minnstu borgar í Englandi og dómkirkjan þar skoðuð. Í lok dags er svo ekið niður eftir tilkomumikilli Cheddar-gjánni en þar er m.a. að finna hellana sem Cheddar-osturinn frægi þroskast í. Kvöldverður á hóteli.

15.08. Dagsferð til Wales. Ekið um Newport, Abergavenny og Merthyr Tydfil í Brecon þjóðgarðinn. Haldið til baka um Crickhowell og Ross on Wye. Allt eru þetta sögufrægir og fagrir staðir og verður stanzað nokkrum sinnum á leiðinni. Kvöldverður á hóteli.

16.08. Haldið af stað fyrir hádegi til Stonhenge og litið á þær merku fornminjar. Síðan er ekið til Salisbury, þar gefur m.a. að líta dómkirkju, sem er talin eins sú fegursta í Englandi og skartar hæsta kirkjuturni landsins. Þar fáum við einnig frjálsan tíma til að líta á fallega miðbæinn og fá okkur hressingu áður en haldið er til Heathrow-flugvallar þaðan sem flogið er heim klukkan 21:10.

.

Verð á mann: 159.850,-

Innifalið er

  • flug og flugvallaskattar
  • gisting í tveggjamanna herbergjum
  • morgunverður
  • kvöldverður (6 kvöld)
  • allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu
  • aðgangseyrir í Oxford, Bath og Stonehenge
  • íslenzk fararstjórn

Verð miðast við gengi og forsendur 12.10. 2011 og 35 manna hóp.

Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson

 







Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar | Utanlandsdeild | Borgartún 34, 105-Reykjavík | S: 511 1515 | Fax: 511 1511 | outgoing@gjtravel.is | Kt.: 410166-0389