Rínarsigling 30.09. - 04.10. 2012

Sigling á Rín, einu helzta stórfljóti Vestur-Evrópu, þar sem hún flýtur um hinn fagra og rómaða Rínardal. Siglt er á góðu skipi með prýðis vistarverum; nær allt fæði og drykkir innifalið.

30.09. Flogið til Frankfurt og ekið þaðan, með tilheyrandi stoppum, til borgarinnar Koblenz, sem stendur við mót stórfljótanna, Rínar og Mósel. Þar bíður okkar fljótaskip og við komuna þangað fá farþegar afhenta lykla að klefum sínum. Kvöldverður og gisting um borð.

01.10. Siglt í bítið af stað upp eftir Rínarfljóti og eftir Rínardal, þar sem hann er fegurstur. Þessi hluti Rínar ásamt umhverfi er allur á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna og leiðin er vörðuð köstulum, þorpum og þjóðsagnastöðum, m.a. Lorelei-kletti þar sem vatnadísin Lorelei heillar til sín þá sem framhjá sigla með söng sínum. Morgunverður og hádegisverður um borð. Komið til Rüdesheim um klukkan 14:00. Þar er dagurinn frjáls og ýmislegt í boði. Kvöldverður um borð en kvöldið frjálst í Rüdesheim og tilvalið að líta í bæinn eftir matinn. Siglt af stað um miðnætti.

02.10. Morgunverður og hádegisverður um borð og komið til Mannheim fljótlega eftir hádegi. Þaðan er hægt að fara í skoðunarferð til Heidelberg þar sem finna má einn frægasta kastala Þýzkalands og þar er einnig elzti og jafnframt einn virtasti háskóli landsins. Heidelberg er heillandi borg, sem er vel heimsóknarinnar virði. Siglt aftur af stað um klukkan 18:00. Um kvöldið er "gala"-kvöldverður (spariklæðnaður).

03.10. Komið til Strassborgar um morguninn. Haldið frá borði eftir morgunverð og innritast á hótel. Strassborg er falleg gömul borg þar sem mætast þýzk og frönsk menning enda er borgin á fornu átakasvæði þessara stórþjóða og hefur tilheyrt hvoru ríkinu um sig í gegnum tíðina. Borgin stendur við ána Ill, sem er ein af þverám Rínar. Miðbær borgarinnar er á eyju úti í ánni og er hann allur á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Þar er meðal annars að finna dómkirkjuna, sem eitt sinn var hæzta bygging veraldar og einnig “Litla-Frakkland” (Petite-France), sem er heillandi hverfi byggt gömlum grindarmúrshúsum sem standa við kvíslar Ill-árinnar.

04.10. Ekið um klukkan 09:00 frá Strasbourg til Frankfurt þaðan sem flogið verður til Keflavíkur klukkan 14:00.

Fararstjóri: Emil Örn Kristjánsson



Verð á mann: 159.950,-


Innifalið í verði er
  • flug og flugvallaskattar
 • akstur Frankfurt - Koblenz og Strassborg - Frankfurt
 • sigling á Rín með gistingu í tveggja manna klefa í 3 nætur
 • fullt fæði um borð (kvöldverður x3, morgunverður x3, hádegisverður x2)
 • drykkir með mat um borð (öl, vín, gos, kaffi)
 • gisting í tveggjamanna herbergi á hóteli í Strassborg ásamt morgunverði
 • íslenzk fararstjórn

Aukagjald fyrir einbýli 32.900,-

Verð miðast við gengi og forsendur 19.01.2012 og 30 manna hóp.
Ferðaáætlun getur tekið breytingum










 
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar | Utanlandsdeild | Borgartún 34, 105-Reykjavík | S: 511 1515 | Fax: 511 1511 | outgoing@gjtravel.is | Kt.: 410166-0389