I.A.A. - Ferð 2012 20. - 23. september.
Alþjóðlega þýska bifreiðasýningin var fyrst haldin í Frankfurt árið 1900. Annað hvert ár er haldin atvinnubifreiðasýning í Hannover, þar sem allir helstu framleiðendur sýna það nýjasta í framleiðslu sinni, auk þess sem fjöldi annara framleiðenda sem sýna ýmsa bifreiðahluti. Eins og áður bjóðum við ferð á sýninguna í ár og er ferðaáætlun eftirfarandi:
20. september fimmtudagur.
Flogið til Frankfurt með Flugleiðum FI 520 kl.07:25 og lent í Frankfurt kl.12:50. Ekið þaðan til Celle, sem er gamall bær norðan Hannover þar sem gist verður næstu 3 nætur að Hótel Heideköning ( www.heidekoenig-celle.de).
21. september föstudagur
Eftir morgunverð er ekið til Hannover og deginum varið á I.A.A. sýningunni. Aðgangur að sýningunni er í boði Omnibus Trading. Ekið til Celle eftir sýningu.
22. september laugardagur.
Deginum varið á sýningunni. Ekið til Celle eftir sýningu.
23. september sunnudagur.
Heimferðadagur. Ekið frá Celle farið um Elbe-göngin vestan Hamborgar að dönsku landamærunum. Ekið norður Jótland, um Fjón, yfir Stórabeltisbrúna og um Sjáland til Kaupmannahafnar í tæka tíð til að fljúga heim með kvöldflugi Flugleiða FI 217 kl. 22:30 og lent í Keflavík kl.23:40.
Hægt er framlengja dvöl í Kaupmannahöfn gegn aukagjaldi.
Fararstjóri er Gunnar Guðmundsson
Verð á mann: 123.800.- krónur.
Innifalið í verði
Aukagjald fyrir gistingu í einsmanns herbergi er 23.000,- krónur
ATH.: Aðeins örfá einsmannsherbergi eru til.
Verð miðast við gengi Evru og forsendur 31. Janúar 2012.