Frakkland-Normandí 10.-14. ágúst 2012
Fimm daga ferð um Normandí á slóðir Normanna, Innrásarinnar á D-degi, rómantískra hafnarbæja og eplabrennivínsins fræga, Calvados. Skoðunarferðir daglega, hálft fæði innifalið. Kynnist sögu og samtíð þessa litríka og sögufræga héraðs.
10.08. Flogið frá Keflavík klukkan 07:40 og lent í París klukkan 13:00. Þaðan er ekið til Bayeux í Normandí, þar sem verður gist næstu 4 nætur. Kvöldverður á hóteli.
.
11.08. Fyrir hádegi förum við í gönguferð um Bayeux, sem er borg með vel varðveittan miðaldamiðbæ og skartar glæsilegri dómkirkju, Notre Dame. Þar skoðum við eina af frægustu veggmyndum heims, Bayeux-refilinn sem er frönsk þjóðargersemi og segir sögu orrustunnar við Hastings árið 1066. Þar sem Vilhjálmur bastarður, hertogi af Normandí, lagði undir sig England. Eftir hádegi skoðum við staði tengda D-deginum, 06. Júní 1944. Við heimsækjum staði eins og Omaha strönd, Arromanches, Pointe du Hoc og Caen, sem tengjast þessari stærstu innrás sögunnar frá sjó og olli straumhvörfum í seinni heimstyrjöldinni. Normandí er einnig þekkt landbúnaðarhérað og þá sérstaklega fyrir mikla eplarækt. Á leið okkar til baka til Bayeux munum við stoppa við á búi þar sem Calvados eplavín er framleitt. Þar fáum við að smakka á eplavíninu þeirra og kynna okkur framleiðsluhætti. Þaðan höldum við síðan heim á leið. Kvöldverður á hóteli.
.
12.08. Fyrir hádegi er haldið til Rúðuborgar (Rouen) bústaðar Göngu-Hrólfs og afkomenda hans, hertoganna af Normandí. Borgin er m.a. þekkt fyrir vel varðveittan miðbæ, með fjölda grindarmúrshúsa. Þar verður farið í um klukkustunar gönguferð með leiðsögn um borgina. Við skoðum gamla miðbæinn t.d. við Vieux Marché-torg þar sem heilög Jóhanna af Örk var brennd á báli árið 1431. Eftir gönguferðina er frjáls tími til að skoða sig um, kíkja í búðarglugga og finna sér notanlegan veitingastað til að fá sér hádegisverð. Síðdegis liggur leið okkar svo til bæjarins Honfleur. Þetta er lítill hafnarbær sem ýmsir listmálarar hafa notað sem fyrirmynd í málverk sín og höfnin hefur orðið að vinsælli snekkjuhöfn. Við göngum um gamla bæinn sem hefur haldið í sögulega arfleifð sína. Að heimsækja Honfleur er eins og að ferðast aftur í tímann. Við ökum síðan sem leið liggur með norðurströndinni og þræðum fræga strandstaði s.s. Deauville og Tourville á leið okkar til Bayeux.
.
13.08. Heilsdagsferð til Mont St. Michael. Mont Saint Michel er lítil klettótt örfiriseyja út af Normandí, rúmlega einn kílómetra frá norðurströnd Frakklands. Þar var fyrst reist kirkja snemma á 8. öld og munklífi hófst þar á 10. öld. Og efst á eynni trónir kirkja frá því um árið 1000. Það er lítið um pláss á eynni því kirkjur og klaustrið taka bróðurpartinn af öllu landrými. Undir flestum byggingum leynast lög af fornum kirkjum sem byggðar voru frá 11. öld til 16. aldar og oft hver ofan á aðra, þannig að saga hennar og kristninnar er æði löng. Eyjan var með fyrstu minjunum sem lentu á heimsminjaskrá hjá Unesco.
.
14.08. Brottför af hótelinu og haldið til Charles de Gaulle-flugvallar þaðan sem flogið er heim klukkan 14:15 og lent í Keflavík klukkan 15:45.
.
Fararstóri er Parísardaman Kristín Jónsdóttir
Verð á mann 145.350
Innifalið í verði ferðar.
-
flug, flugvallaskattar,
-
gisting í tveggjamanna herbergjum,
-
morgunverður, kvöldverður,
-
allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu, aðgangseyrir og íslenzk fararstjórn.
Aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 34.000
Verð miðast við gengi og forsendur og 25 manna hóp.