Færeyjaferð 8. - 11. október 2010
Skemmtileg helgarferð til Færeyja. Fæði og skoðunarferðir innifalið. Hví ekki að breyta til og heimsækja granna okkar í austri, sögusvið bóka Heinesens og Barböru eftir Jörgen Frantz Jacobsen, þjóð sem er um það bil að fara að fóta sig í samfélagi fullvalda ríkja, þar sem gamli tíminn situr enn í þröngum tröðunum á Tinganesi og þar sem oftast er hægt að bjarga sér á móðurmálinu.
08.10. Flogið til Færeyja og lent þar klukkan 15:00. Ekið frá flugvelli til Þórshafnar þar sem gist verður næstu 3 nætur.
09.10. Frjáls tími en einnig verður boðið upp á gönguferð um gamla bæinn í Þórshöfn (Tinganes og Reyni).
10.10. Dagsferð um Straumey, Austurey og Borðey. Ekið til Tjörnuvíkur og haldið síðan á brú yfir til Austureyjar. Ekið þar um Eiði, og Gjógv (gamalt þorp) og einnig verður komið við í Götu, þar sem Þrándur bjó. Þaðan er svo ekið um Leirvík og neðansjávargöng til Borðeyjar og litið við í Klakksvík
11.10. Lagt af stað fyrir hádegi og byrjað að líta við í Kirkjubæ þar sem meðal annars er að finna kirkju frá 12. öld, rústir af stórri gotneskri dómkirkju frá 13. öld og “Reykstofuna”, íbúðarhús frá því um 1100, líklega eitt það elsta á Norðulöndum. Þaðan er svo ekið út á Vogey og litast um, m.a. farið út í Gásadal. Flogið heim frá Voga-flugvelli klukkan 16:00.
Verð á mann 116.750,-
Innifalið í verði er
- flug og flugvallaskattar
- gisting í tveggjamanna herbergi
- morgunverður og kvöldverður
- allur akstur og skoðunarferðir samkv. lýsingu
- íslenzk fararstjórn
Fararstjóri:
Emil Örn Kristjánsson
Verð miðast við gengi og forsendur 04.02. 2010 og 25 manna hóp.