Aðventuferð til Brussel og Brügge

07.-11.12. 2012

Blúndur og bjór, súkkulaði og vöfflur, góður matur... Stutt en yfirgripsmikil helgar- og jólamarkaðsferð til belgísku borganna Brussel og Brügge. Allar skoðunarferðir innifaldar, íslenzk fararstjórn.


07.12. Flogið kl. 07:50 að morgni frá Keflavík til Amsterdam og ekið þaðan til Brussel, höfuðborgar Belgíu, þar sem gist verður næstu 4 nætur á vel staðsettu hóteli í miðborginni. Komið til Brussel um klukkan 16:00.

08.12. Farið klukkan 10:00 í stutta skoðunarferð um Brussel. Meðal annars er ekið að Atomium-turninum, sem byggður var í tilefni heimssýningarinnar 1958, og einnig í Cinquantenaire-garðinn með Sigurboganum. Að akstri lokunum er gengið um miðbæinn og litið á Ráðhústorgið, Grand Place, sem er umlukið fögrum, gömlum byggingum og Manneken-Pis, sem er ein þekktasta stytta í Evrópu . Brussel er heimsborg að fornu og nýju og hefur upp á margt að bjóða og Belgar eru þekktir fyrir góðan mat, gott og fjölbreytt öl og fyrsta flokks súkkulaði. Í Brussel er skemmtilegur jólamarkaður og tilvalið að skoða hann eða njóta dagsins á annan hátt.

09.12. Farið kl. 10:00 í dagsferð til Brügge, sem er einstaklega heillandi og fögur borg í flæmskumælandi hluta Belgíu. Borgin var á síðmiðöldum ein helzta hafnar- og viðskiptaborg Evrópu en glataði síðar stöðu sinni. Því standa þar enn í dag glæsibyggingar frá blómatíma borgarinnar sem hafa nú hlotið verðskuldaða athygli og viðhald. Á aðventunni er skemmtilegur jólamarkaður á aðaltorgi borgarinnar og aðliggjandi götum.

10.12. Frjáls dagur í Brussel. Í Brussel er að finna fjölda verzlana, kaffihúsa og áhugaverðra staða auk þess sem skemmtilegt er að ganga um á jólamarkaðnum og upplifa sannkallaða aðventustemmingu.

11.12. Ekið klukkan 08:00 til Amsterdam þaðan sem flogið verður heim klukkan 13:20. Lent í Keflavík klukkan 15:30.


Fararstjóri: Emil Örn Kristjánsson

 


Verð á mann: 113.600,-


Innifalið er:
  • flug og flugvallaskattar
  • gisting í tveggjamanna herbergi
  • morgunverður
  • allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu
  • íslenzk fararstjórn 

Aukagjald fyrir einsmanns herbergi: 15.500,- krónur

Verð miðast við gengi og forsendur 12.02. 2012 og 30 manna hóp.

Ferðaáætlun getur tekið breytingum











Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar | Utanlandsdeild | Borgartún 34, 105-Reykjavík | S: 511 1515 | Fax: 511 1511 | outgoing@gjtravel.is | Kt.: 410166-0389