Landbúnaðarferð til Skotlands 22. júní til 28. júní 2012
22.06. Flogið til Manchester klukkan 08:00 og lent þar klukkan 13:40. Ekið frá flugvelli til Skotlands að Hotel Mercure í Livingston, rétt fyrir utan Edinborg og gist þar 2 nætur.
23.06. Ekið að “Royal Highland Show”-sýningunni að morgni og deginum eytt þar. Ekið aftur heim á hótel í lok dags.
24.06. Haldið til Aberdeen þar sem gist verður eina nótt á Park Inn Hotel
25.06. Ekið um Norðaustur-Skotland til Inverness, þar sem gist verður á Travelodge Hotel næstu 2 nætur.
26.06. Sigling á Loch Ness og farið í heimsóknir. Gist aftur í Inverness.
27.06. Ekið til Glasgow og gist þar á Etap Hotel. Síðdegið frjálst í Glasgow.
28.06. Ekið út á flugvöll og flogið til Keflavíkur
Verð á mann: 149.400,- Aukagjald í einstaklingsherbergi 27.500,-
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi, morgunverður, allur akstur samkvæmt lýsingu, heimsókn á tvö sauðfjárbú, nautgripabú, kornræktarbú og viskíeimingastöð. Verð miðast við gengi og forsendur 07.02. 2012 og 25 manna hóp.