Drög að Vestfjarðaferð
Fjögurra daga ferð með leiðsögn um Vestfirði, þar sem víða verður komið við. Meðal annars siglt út í Vigur, farið út á Látrabjarg og siglt yfir Breiðafjörð. Fæði og hótelgisting innifalið.
1. Dag. Ekið frá Reykjavík um Hvalfjarðargöng til Hólmavíkur og um Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp, þar sem við þræðum hina mörgu firði sem inn úr því ganga, til Ísafjarðar. Þar verður gist á Hótel Eddu. Kvöldverður þar (um 500 km).
2. Dag. Að loknum morgunverði er ekið til Bolungarvíkur og Skálavíkur. Síðan er haldið aftur til Ísafjarðar og farið þaðan í siglingu út í Vigur klukkan 14:00. Komið aftur til Ísafjarðar milli klukkan 17:00 og 18:00. Þaðan er ekið að Hótel Núpi í Dýrafirði, þar sem gist verður. Kvöldverður þar.
3. Dag. Farið um Vestfirði, m.a. með stoppi á Hrafnseyri og við fossinn Dynjanda, út á vestasta odda Evrópu, Látrabjarg. Það er 14 kílómetra langt og 441 metra hátt, stærsta sjávarbjarg á Íslandi og mesta fuglabjarg Evrópu. Gist á Hótel Breiðuvík. Kvöldverður þar (um 330 km).
4. Dag. Siglt klukkan 12:15 með Baldri yfir Breiðafjörð til Stykkishólms. Þaðan ökum við um Vatnaleiðina og um Hvalfjörðinn til Reykjavíkur (um 215 km).