FÆREYJAR
Færeyjar
eru ein minnsta þjóð Evrópu og þó Færeyjar séu hluti Danaveldis njóta þær
umtalsverðar sjálfstórnar. Þær eiga sér sitt eigið þing, sem er eitt elzta
þjóðþing í heimi, og sinn eigin háskóla og Færeyingar eiga sér merkilega sögu
og menningu. Þá eru Færeyingar líklega sú þjóð sem skyldust er okkur
Íslendingum og þjóðtungur okkar færeyskan og íslenzkan náskyldar.
Þórshöfn
í Færeyjum er ein minnsta höfuðborg heims en þar er margt að upplifa og skoða
auk þess sem gaman er að sækja frændur okkar heim. Í Þórshöfn er m.a. að finna
Norðurlandahúsið, Listasavn Föroya, Föroya fornminnisavn, ágæta veitingastaði,
kaffihús, verzlanir og hótel sambærileg því sem gerist annarstaðar í Evrópu.
Hví
ekki að breyta til og heimsækja granna okkar í austri, sögusvið bóka Heinesens
og Barböru eftir Jörgen Frantz Jacobsen, þjóð sem er um það bil að fara að fóta
sig í samfélagi fullvalda ríkja, þar sem gamli tíminn situr enn í þröngum
tröðunum á Tinganesi og þar sem oftast er hægt að bjarga sér á móðurmálinu?
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar býður úrval pakkaferða fyrir stóra og smáa hópa til
Færeyja bæði í lengri og skemmri ferðir.
Flogið
er til Færeyja allt árið á föstudögum og mánudögum og eru eyjarnar því
tilvaldar til helgarheimsókna. Þá er einnig flogið á miðvikudögum í júlí og
ágúst.
Til
Færeyja er flogið frá Reykjavíkurflugvelli og þar er að finna litla en ágæta
fríhöfn. Færeysk króna er gjaldmiðillinn í Færeyjum en hún er jafngild danskri
krónu og ganga danskir og færeyskir seðlar jöfnum höndum á eyjunum. Færeysk
mynt er ekki til en þess í stað er notuð
dönsk mynt.
Dæmi
um helgarferð til Færeyja:
Fös. Flogið um hádegisbil frá Reykjavík með
færeyska flugfélaginu Atlantic Airways til Færeyja. Ekið til Þórhafnar þar sem
gist verður á hóteli næstu 3 nætur.
Lau. Frjáls dagur í Þórshöfn. Tilvalið að líta í
verzlanir og kynnast frændum okkar Færeyingum. Eftir hádegi er litast um í
Þórshöfn, höfuðstað Færeyja og m.a. farið í gönguferð um elztu bæjarhlutana:
Tinganes og Reyni.
Sun. Hér mætti hugsa sér að fara í dagsferð um
Straumey og Austurey, sem eru stærstu eyjarnar og eru tengdar með brú. Ekið væri
til Tjörnuvíkur og haldið síðan yfir til Austureyjar. Ekið þar um Eiði, og
Gjógv og jafnvel komið við í Götu, þar sem Þrándur bjó. Þá mætti vel hugsa sér
að fara um nýleg gong yfir á Borðey og til Klakksvíkur.
Einnig mætti hugsa sér að sunnudagsmorguninn væri
frjáls og því tilvalið að fara í kirkju. Eftir hádegi yrði svo farið í
skoðunarferð til Kirkjubæjar þar sem meðal annars er að finna kirkju frá 12.
öld, rústir af stórri gotneskri dómkirkju frá 13. öld og “Reykstofuna”
íbúðarhús frá því um 1100, líklega eitt það elsta á Norðulöndum.
Mán. Ekið eftir morgunverð út á flugvöll og flogið
til Reykjavíkur.
Hikið ekki við að hafa samband við okkur og leita tilboða.